Högni Friðþjófs og félagar tóku forystuna hjá BK
föstudagur, 14. mars 2014
Þriðja kvöldið af fjórum í Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs var spilað í gærkvöldi. Sveit Högna Friðþjófssonar náði efsta sætinu samanlagt með 1726 tig en Sveit Björns Halldórssonar kemur fast á hæla þeim með þremur stigum minna. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.