Bridgefélag Selfoss: Kristján og félagar meistarar

föstudagur, 14. mars 2014

Aðalsveitakeppni félagsins lauk 13. mars, með sigri sveitarinnar Kristján-Siggi-Kalli-Össur með 60,58 stig. Í öðru sæti varð sveitin Óli-Þröstur-Siggi-Siggi með 55,92 stig og í þriðja sæti varð sveitin Bjössi-Mummi-Kalli-Guðmundur með 52,77 stig. Butlermeistarar urðu Ólafur og Þröstur með 0,78 impa/spil. Nánar má finna um öll úrslit á þessari síðu .

Næsta mót hjá félaginu er þriggja kvölda Íslandsbankatvímenningur og eru spilarar beðnir um að skrá sig á þessa síðu hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar