Sigurður Sigurjónsson og Ragnar Björnsson Kópavogsmeistarar
fimmtudagur, 20. febrúar 2014
Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk nú í kvöld þegar spilað var fjórða og síðasta kvöldið í keppninni. Þórður Björnsson og Jón Steinar Ingólfsson fengu hæsta skor kvöldsins en Sigurður Sigurjónsson og Ragnar Börnsson náðu að halda efsta sætinu þrátt fyrir að ná aðeins níunda besta skori kvöldsins. Öll úrslit og lokastöðuna má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.