Rangæingar -- Spennan magnast

föstudagur, 21. febrúar 2014

Sl. þriðjudagskvöld var 5. umferðin af 7 leikin í sveitakeppninni.  Tvær efstu sveitirnar áttust við og reyndust Jóvarsmenn sterkari og höfðu Magríksliðið undir 13,13-6,87.   Torfdísarliðar nýttu sér þau úrslit til að skjótast upp í 2. sætið eftir góðan sigur á Hallstínu.  Allt getur enn gerst og geta 4 efstu sveitirnar allar unnið enn og á 1. og 2. sæti munar einungis 1,96 stigi, auk þess sem þær eiga eftir innbyrðisleik.

Í butlernum komu slátrararnir sterkir inn, loksins segja sumir, og skoruðu 2,93 impa í spili.    Hestamennirnir Jói og Biggi náðu líka risaskori, skoruðu 2,505 impa í spili.   Aðrir enduðu með minna.

Úrslitin og stöðuna í sveitakeppninni má sjá hér    Spilin og úrslit í fyrri hálfleik hér en þeim seinni hér   Stöðuna í Butlernum eftir 5 kvöld má svo sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar