Rangæingar -- Nýguttarnir, og nýjasti guttinn

miðvikudagur, 5. febrúar 2014

Sl. þriðjudagskvöld var 3ja umferðin af 8 í sveitakeppninni leikin.   Einhver myndi kannski segja að nú væru sauðirnir farnir að skilja sig frá höfrunum í sveitakeppninni en við sauðirnir viljum nú ekki taka svo djúpt í árinni og teljum okkur enn eiga séns.  

Nýr maður kom til leiks, kom sá og sigraði.  Óli hótelhaldari, mætti til leiks í sveit Nýgutta í fyrsta sinn í sögunni og átti afbragðsleik með Runólfi verkfræðing.   Þeir félagar urðu í fjórða sæti í Butlernum með 0,58 impa skoraða en sundmaðurinn ógurlegi og Maggi makker spiluðu þó best allra og komu í mark með 1,25 impa skoraða.

Úrsltin og stöðuna í sveitakeppninni má sjá hér    Úrslit og spil í fyrri hálfleik hér , þeim seinni hér og stöðuna í Butlernum efir 3 umferðir hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar