Rangæíngar -- Misheppnað herbragð
Sl. þriðjudagskvöld komu einhverjir saman á Austurvelli og mótmæltu. Aðrir komu saman á Heimalandi en þar var engu mótmælt, þvert á móti glöddu menn sig við spil, þó ekki framsóknarvist. Þar ríkti eindrægni og samheldni að vanda og almenn ánægja og sátt við störf stjórnarinnar, altsvo stjórnar félagsins.
Leikin var 6. umferð í sveitakeppni félagsins. Hæst bar innbyrðisviðureign toppsveitanna fyrir umferðina og fóru leikar svo að nú er einungis önnur sveitin á toppnum en leita þarf mun neðar en áður eftir hinni sveitinni. Torfdísarliðar lögðu á ráðin fyrir leikinn og var talið vænlegt til vinnings að hafa sveitina ófríðari sýnum og freista þess þannig að skjóta Jóvarsmönnum, sem komnir eru nokkuð við aldur, skelk í bringu. Því var Herdís send til Danmerkur en hennar sæti tók Sigurjón Pálsson. Sigurjón er góður spilari en verður seint talinn til fríðari manna, ekki fremur en hinir karlkynsmeðlimir sveitarinnar, og töldu menn nú að sveitin yrði óárennileg. Enda var hún það en einungis útlitslega. Grandvarir Jóvarsmenn tóku drengjasveitina á hné sér og rassskelltu, einkum í fyrri hálfleik. Þeir eru því áfram á toppnum, nú með 78,95 stig, en magaþéttir Magríkar nýttu sér illa heppnað herbragð Torfdísarliða og lyftu sér í annað sætið, með 73,84. Herdís hefur nú verið kölluð heim fyrir næsta leik!
Glerhörðu fisksalarnir áttu hins vegar besta butlerinn og skoruðu 2,085 impa en þann næst besta áttu prestakallarnir Kristján og Halldór, sem lítið hefur spurst til um hríð, með 1,755 impa.
Þrátt fyrir sneypuför að borði Jóvarsliða hanga trillukarlarnir Sigurður og Torfi enn á toppnum í Butlernum en fast er nú sótt að vist þeirra þar. Þeir eru með 0,70 impa skoraða að meðaltali en prestakallarnir eru nú komnir með 0,61 impa í 2. sæti.
Úrslit og stöðu í sveitakeppninni má sjá hér Butler og spil fyrri hálfleiks hér og þess seinni hér Staðan í Butlernum er svo hér