Bridgefélag Selfoss: Kristján og félagar efstir eftir 2 umferðir
laugardagur, 15. febrúar 2014
Að loknum 2 umferðum í aðalsveitakeppni félagsins er sveitin Kristján-Siggi-Kalli-Össur efst með 32,58 stig, í öðru sæti er sveitin Óli-Þröstur-Siggi-Siggi með 26,17 stig og í þriðja sæti er sveitin Höskuldur-Eyþór-Garðar-Rikki með 21,30 stig. Nánar um öll úrslit, butlerútreikning og skorkort para efst á þessari síðu. Þriðja umferðin verður spiluð fimmtudaginn 20. febrúar.