Benni og Ingi halda forystunni í Kópavogi
föstudagur, 7. febrúar 2014
Annað kvöldið af fjórum í Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í gærkvöldi. Keppnin er mjög jöfn og spennandi og eru Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson með 56,4% heildarskor og aðeins 0,7 prósenta forystu á næsta par. Helgi Bogason og Egill Darri Brynjólfsson náðu besta skorinu í gærkvöldi með 58,1% en skor kvöldsins og stöðu paranna það kvöld má sjá fyrir aftan nöfn spilaranna undir session.
Öll úrslit og stöðuna má sjá hér.