Rangæingar -- Stelpur í stuði!
Sl. þriðjudag var leikin 2. umferð af 8 í sveitakeppni félagsins. Stelpurnar okkar eru aldeilis í stuði! þar sem Silla okkar hefur spilað allra best, skv. Butlerútreikningi, með honum Eiríki sínum óðalsbónda. Þau hafa nælt sér í 0,56 impa að meðaltali í spili. Næst best hafa Stína og Sigga spilað, eru með 0,49 impa skoraða eftir tvær umferðir.
Af sveitakeppninni sjálfri er það að frétta að sveitin Hallstína (Halldór-Kristján / Sigríður og Kristín) er á toppnum með 26,12 vinningsstig. Næsta sveit er Magríkur (Maggi-Maggi / Silla-Eiríkur) með 22,95 og Jóvar (Jói-Siggi / Svavar-Svavar) er í því þriðja með 22,29 stig.
Úrslit leikja í 2. umferð og staðan í sveitakeppninni eru hér
Butler í fyrri hálfleik er hér og í seinni hálfleik hér. Staðan í butlernum eftir 2 umferðir er svo hér