Rangæingar - Sígandi lukka
Sl. þriðjdagskvöld komu Rangæingar saman á Heimalandi og til stóð að hefja sveitakeppni félagsins með sjö sveitum. Kom þá í ljós að fleiri höfðu hug á að vera með og áttunda sveitin var í burðarliðnum. Sveitakeppninni var því frestað um eina viku en í staðinn spilaður eins kvölds Howell tvímenningur með þeim 14 pörum sem mætt voru til leiks.
Eftir rólega byrjun, og um margt verðskuldaða vist neðarlega á stigatöflunni framan af kvöldi, hrukku slátrarinn og skipstjórinn óvænt í gang og skoruðu grimmt. Þegar upp var staðið munaði einungis einu stigi á þeim og Skógabændum. Sigurður og Torfi nældu í 204 stig (65,4% skor) en Jói og Siggi 203 (65,1% skor). Örn III endaði svo þriðji að vanda, í þetta sinn með golfguttann með sér, með 170 (54,5% skor).
Úrslit og spil má sjá hér