Mikilvægar tilkynningar frá B.A.

miðvikudagur, 1. janúar 2014

Gleðilegt árið!

Á nýju ári eru nokkur mót á dagskrá og fyrsta er þriðjudaginn 7.janúar sem er eins kvölds Nýárstvímenningur.

Því næst eru tvö sveitakeppnismót: Akureyrarmótið í sveitakeppni á þriðjudögum og Svæðamót Norðurlands eystra í sveitakeppni helgina 11.-12.jan. Við viljum endilega að sveitir og spilarar láti vita hvort vilji vera með í þeim mótum svo hægt sé að púsla saman. Síminn hjá Stefáni V er 8984475

Vegna framkvæmda mun B.A. næstu 2 mánuði spila í sal Gámaþjónustu Norðurlands sem er á Hlíðarvöllum. Ekið er sem leið liggur upp í fjall og næsti afleggjari eftir Norðurorku. Gengið er inn að sunnan. Farið er úr skóm svo sumir gætu tekið með sér inniskó.

Sjáumst....

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar