Bridgefélag Selfoss: Helgi og Brynjólfur leiða janúarbutlerinn

sunnudagur, 19. janúar 2014

Eftir 2 kvöld af 3 í janúarbutlernum þá eru Helgi Hermannsson og Brynjólfur Gestsson efstir með 77 impa. Í öðru sæti eru Anton Hartmannsson og Pétur Hartmannsson/Hjörtur Halldórsson með 74 impa og í þriðja sæti eru Kristján Már Gunnarsson og Sigurður Magnússon með 71 impa. Nánar um úrslitin, spilagjöfina og skor einstakra para á þessari síðu.

Ekki verður spilað hjá félaginu fimmtudaginn 23. febrúar vegna Bridgehátíðar, en mótinu lýkur 30. janúar.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar