Rangæingar -- Léttfættur læknir

miðvikudagur, 5. desember 2012

Þriðjudaginn 4. desember var fjórða kvöld af fimm í Butler spilað.   Læknirinn léttfætti Guðmundur Benediktsson og verktakinn vaski Óskar Pálsson, áttu besta skorið þetta kvöld, skoruðu 37 impa í 26 spilum.   Maggarnir mögnuðu, Bjarnason og Halldórsson urðu í öðru sæti með 29 impa skoraða.  Úrslit kvöldsins má sjá hér

4 bestu kvöldin af 5 telja til úrslita og þegar 4 kvöld eru búin er staða efstu para þannig, þegar lakasta kvöldið af þessum þremur er tekið út:

1. Óskar Pálsson - Guðmundur Benediktsson           1,488 impar að meðaltali úr spili.

2. Magnús Bjarnason - Magnús Halldórsson             1,309 impar að meðaltali úr spili. 

3. Brynjólfur Gestsson - Garðar Garðarsson            1,050 impar að meðaltali úr spili.

 Ef öll kvöldin fjögur eru talin saman, svona til gamans, er röð efstu para þannig:

1. Óskar Pálsson - Guðmundur Benediktsson           0,696  impar að meðaltali úr spili.

2. Brynjólfur Gestsson - Garðar Garðarsson            0,672 impar að meðaltali úr spili.

3. Magnús Bjarnason - Magnús Halldórsson             0,510 impar að meðaltali úr spili. 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar