Rangæingar -- Léttfættur læknir
Þriðjudaginn 4. desember var fjórða kvöld af fimm í Butler spilað. Læknirinn léttfætti Guðmundur Benediktsson og verktakinn vaski Óskar Pálsson, áttu besta skorið þetta kvöld, skoruðu 37 impa í 26 spilum. Maggarnir mögnuðu, Bjarnason og Halldórsson urðu í öðru sæti með 29 impa skoraða. Úrslit kvöldsins má sjá hér
4 bestu kvöldin af 5 telja til úrslita og þegar 4 kvöld eru búin er staða efstu para þannig, þegar lakasta kvöldið af þessum þremur er tekið út:
1. Óskar Pálsson - Guðmundur Benediktsson 1,488 impar að meðaltali úr spili.
2. Magnús Bjarnason - Magnús Halldórsson 1,309 impar að meðaltali úr spili.
3. Brynjólfur Gestsson - Garðar Garðarsson 1,050 impar að meðaltali úr spili.
Ef öll kvöldin fjögur eru talin saman, svona til gamans, er röð efstu para þannig:
1. Óskar Pálsson - Guðmundur Benediktsson 0,696 impar að meðaltali úr spili.
2. Brynjólfur Gestsson - Garðar Garðarsson 0,672 impar að meðaltali úr spili.
3. Magnús Bjarnason - Magnús Halldórsson 0,510 impar að meðaltali úr spili.