Rangæingar -- Læknir og listasmiður á léttum spretti

miðvikudagur, 12. desember 2012

Þriðjudaginn 11. desember lauk 5 kvölda BUTLER keppni félagins.  Sigurður og Torfi náðu loks vopnum sínum á lokakvöldinu og unnu kvöldið með 53 IMPum, eða 2,04 IMPum úr spili.   Þau Eiríkur óðalsbóndi á Kanastöðum og hún Silla okkar urðu svo í öðru sæti með 40 IMPa skoraða. Úrslit síðasta kvöldsins má nálgast hér 

Læknirinn léttstígi, Guðmundur Benediktsson, og listasmiðurinn, Óskar Pálsson, unnu BUTLERinn næsta örugglega, skoruðu rúmlega 0,5 impum meira í hverju spili en næsta par.    Þeir hefðu einnig orðið hlutskarpastir væru öll kvöldin talin til vinnings.   Glæsilega gert og til hamingju piltar!

4 bestu kvöldin af 5 telja til úrslita og urðu úrslit þessi:

1. Óskar Pálsson - Guðmundur Benediktsson           1,472 impar að meðaltali úr spili.

2. Halldór Gunnarsson - Kristján Mikkelsen               0,934 impar að meðaltali úr spili. 

3. Sigurður K. Guðbjörnsson - Torfi Sig ofl. kappar 0,700 impar að meðaltali úr spili.

 Ef öll kvöldin fimm eru talin saman, svona til gamans, er röð efstu para þannig:

1. Óskar Pálsson - Guðmundur Benediktsson           0,841 impar að meðaltali úr spili.

2. Brynjólfur Gestsson - Garðar Garðarsson            0,415 impar að meðaltali úr spili.

3. Jóhann Frímannsson - Sigurður Sigurjónsson      0,231 impar að meðaltali úr spili. 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar