Rangæingar -- Jólamót -- Góð þátttaka en pláss fyrir 1-2 pör til viðbótar
Laugardaginn 29. desember heldur Bridgefélag Rangæinga sitt árlega jólamót. Mótið hefst kl. 12,00 og spilað verður í golfskálanum á Strönd, mitt á milli Hellu og Hvolsvallar. Sennilega fallegasti spilastaður landsins, hvað útsýni varðar. Þátttaka tilkynnist til Bergs Pálssonar, í síma 894 0491 eða á netfangið: frami@simnet.is. Nú eru 20 pör skráð til leiks en enn er pláss fyrir 1-2 pör.
Lista yfir þá sem þegar hafa skráð sig til leiks má sjá hér
Eins og í öllum alvöru mótum hefur verið skipuð dómnefnd, ef upp kunna að koma ágreiningsmál. Sama nefnd mun annast verkið og sker úr um ágreiningsmál innan klúbbsins á vikulegum spilakvöldum. Haustið hefur verið annasamt hjá dómefndinni og hefur nefndin þurft að útkljá óvenju mörg deilumál þetta haustið. Mikið hefur mætt á formanni dómnefndar, Magnúsi Halldórssyni, við þau verk. Fyrir þá sem ekki þekkja Magnús er hér birt mynd af honum, svo menn geti auðveldlega fundið hann í hópi spilara á Strönd. Myndina má sjá hér