Miðvikudagsklúbburinn: Sigrún og Svala efstar í Alheimstvímenningnum

miðvikudagur, 19. desember 2012

Sigrún Þorvarðardóttir og Svala Pálsdóttir unnu Alheimstvímenninginn á síðasta spilakvöldi Miðvikudagsklúbbsins 2012. Þær enduðu með 62,5%.  Í öðru sæti voru Sigurjón  Karlsson og Baldur Bjartmarsson með 60,3%. Þriðja sætið varð hlutskipti Huldu Hjálmarsdóttur og Halldórs Þorvaldssonar.

Á úrslitasíðu Miðvikudagsklúbbsins er að finna öll úrslit og spil og tengla á úrslit á heimsvísu.

Miðvikudagsklúbburinn óskar öllum spilurum gleðilegra jóla og farsældar á komandi árum.

Næsta spilakvöld félagsins er 9. janúar 2013.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar