Miðvikudagsklúbburinn: Hulda og Halldór unnu 22 para tvímenning

miðvikudagur, 12. desember 2012

Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson unnu 22 para tvímenning með 60,8%. Í 2. sæti voru Anna Jónsdóttir og Sigurrós Sigurðardóttir mðe 60%.  Soffía Daníelsdóttir og Óli Björn Gunnarsson voru í 3ja sæti með 58,8%

Öll úrslit og spil

Miðvikudaginn 19. desember verður spilaður Alheimstvímenningur í Miðvikudagsklúbbnum á vegum Heimssambandsins í Bridge (WBF). Bætt verður 200 krónum á spilara við keppnisgjaldið sem rennur til styrktar yngri spilurum í bridge í heiminum.

Spilað verður um silfurstig og veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin auk þess sem aukaverðlaun verða dregin út.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar