Gísli og Leifur unnu Jólatvímenning BK

fimmtudagur, 20. desember 2012

Í kvöld var spilaður bráðskemmtilegur Jólatvímenningur hjá Bridgefélagi Kópavogs og mættu 23 pör til leiks. Mörg bráðskemmtileg spil og skemmtileg tilþrif litu dagsins ljós og endaði ballið með því að Gísli Tryggvason og Leifur Kristjánsson stóðu uppi sem sigurvegar með 62,4% skor og þáðu rauð verðlaun fyrir. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.

Starfsemi félagsins hefst síðan aftur eftir jólafrí fimmtudaginn 03 janúar með þriggja kvölda Monrad-tvímenningi.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar