Rangæingar -- Vert að fylgjast með vertinum

miðvikudagur, 7. nóvember 2012

5 kvölda Butler félagsins hófst þriðjudaginn 6. nóvember.   Skor fjögurra bestu kvölda (af fimm kvöldum) hvers pars mun gilda til sigurs í mótinu.  Jóhann vert í Moldnúpi bauð gestum sínum við bridgeborðið ekki upp á dúkað veisluborð né uppbúin rúm þetta fyrsta kvöld, hvað þá IMPa að vild og Sigurður Skógabóndi var ekki síður harður í horn að taka og niðurstaðan varð 48 IMPa skor þeirra félaga, eða 2,18 ipmar að meðaltali úr spili.    Magnús fyrsta og Magnús annan vantaði þó einungis herslumuninn upp á að ná að skáka þeim, en þeir skoruðu 45 impa.   Úrslit kvöldsins eru hér 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar