Rangæingar -- öflugir Árnesingar

miðvikudagur, 28. nóvember 2012

Þriðjudaginn 28. nóvember var 3ja kvöld af 5 í Butler spilað.   Þeir yngissveinar Brynjólfur Gestsson og Garðar Garðarsson, frá Selfossi, sem heiðrað hafa okkur Rangæinga með þátttöku sinni undanfarin kvöld, áttu langbesta skorið þetta kvöld, heila 63 impa í 26 spilum.   Þó Óskar Pálsson Afríkufari kæmi með líflækni sinn, Guðmund Benediktsson, til leiks dugði það ekki nema í 33 impa skor og 2. sæti.  Úrslit kvöldsins má sjá hér

4 bestu kvöldin af 5 telja til úrslita og þegar 3 kvöld eru búin er staða eftstu para þannig þegar lakasta kvöldið af þessum þremur er tekið út:

1. Magnús Bjarnason - Magnús Halldórsson            1,636 impar að meðaltali úr spili. 

2. Óskar Pálsson - Guðmundur Benediktsson           1,521 impar að meðaltali úr spili.

3. Brynjólfur Gestsson - Garðar Garðarsson            1,439 impar að meðaltali úr spili.

 Ef öll kvöldin þrjú eru talin saman, svona til gamans, er röð eftstu para þannig:

1. Brynjólfur Gestsson - Garðar Garðarsson            1,050 impar að meðaltali úr spili.

2. Magnús Bjarnason - Magnús Halldórsson             0,463 impar að meðaltali úr spili. 

3. Óskar Pálsson - Guðmundur Benediktsson           0,453  impar að meðaltali úr spili.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar