Rangæingar -- Prestasjónið plumar sig!

miðvikudagur, 31. október 2012

30. október var spilaður Barómeter.   Prestarnir, Halldór og Kristján, með prestasjónið sitt að vopni unnu næsta öruggan sigur með 65,7% skor en þeir prestakallar hafa farið mikinn á haustdögum og eru strax komnir með þægilega forystu í Meistarakeppni félagsins.  Úrslitin má nálgast hér

Þann 23. október var spilaður eins kvölds tvímenningur.   Sá gamli refur Björn Dúason sótti ungan dreng á Selfoss og þeir félagar unnu með 61,4% skori, einu prósentustigi á undan Torfa trillukarli og Didda glerskera.   Úrslitin má sjá hér

 Næsta mót er 5 kvölda Butler tvímenningur.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar