Rangæingar -- Prestasjónið plumar sig!
miðvikudagur, 31. október 2012
30. október var spilaður Barómeter. Prestarnir, Halldór og Kristján, með prestasjónið sitt að vopni unnu næsta öruggan sigur með 65,7% skor en þeir prestakallar hafa farið mikinn á haustdögum og eru strax komnir með þægilega forystu í Meistarakeppni félagsins. Úrslitin má nálgast hér
Þann 23. október var spilaður eins kvölds tvímenningur. Sá gamli refur Björn Dúason sótti ungan dreng á Selfoss og þeir félagar unnu með 61,4% skori, einu prósentustigi á undan Torfa trillukarli og Didda glerskera. Úrslitin má sjá hér
Næsta mót er 5 kvölda Butler tvímenningur.