Björn og Þórður leiða BK-Butler

fimmtudagur, 18. október 2012

Björn Jónsson og Þórður Jónsson héldu forystunni í butlertvímenningi Bridgefélags Kópavogs en annað kvöldið af þremur var spilað í kvöld. Þórir Sigursteinsson og Björn Halldórsson koma næstir en þeir hafa góða forystu á Baldur Bjartmarsson og Sigurjón Karlsson sem náðu besta skori kvöldsins. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar