Gísli og Leifur byrja Hausttvímenninginn vel
fimmtudagur, 20. september 2012
Fyrsta kvöldið af þremur í Hausttvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Spilað var á 11 borðum og urðu Gísli Tryggvason og Leifur Kristjánsson hlutskarpastir en staða efstu para er mjög jöfn. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.