27 blaðaspil hjá Birni Þ. og Pétri Gísla!

þriðjudagur, 4. september 2012

Þeir Björn Þorláksson og Pétur Gíslason unnu með risaskori upp á 67% í Sumarbridge B.A. þann 4.september. Hver veit nema að greinaflokkur verði í Akureyri vikublaði á næstunni?

Í 2.sæti urðu Ingólfur Mattíasson og Sigurbjörn Haraldsson með 58,1% og í 3.sæti Frímann Stefánsson og Reynir Helgason með 55,9%.

Öll úrslit og samanburð má sjá hér

Þriðjudaginn 11.september verður síðasta kvöld Sumarbridge en Stebbi Vill lofar meðlæti með kaffinu í tilefni afmælis síns. Þann 18. september hefst vetrarstarfið á tveggja kvölda Startmóti.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar