Sumarbridge: Jón Bjarki og Þórður fyrstu sigurvegarar!

mánudagur, 14. maí 2012

Þórður Sigurðsson og Jón Bjarki Stefánsson unnu fyrsta spilakvöld í Sumarbridge 2012. Þeir enduðu með 58,9% og annað sæti féll í hlut Halldórs Þorvaldssonar og Magnúsar Sverrissonar með 57,7%. Halldóra Magnúsdóttir og Soffía Daníelsdóttir urðu í 3ja sæti með 56,5%.

Sumarbridge er spilað mánudags og miðvikudagskvöld og byrjar kl. 19:00. Allir spilarar eru velkomnir og er tekið vel á móti öllum, vönum og óvönum.

Heimasíða Sumarbridge 2012

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar