Þriggja kvölda tvímenningur að hefjast í Kópavogi
þriðjudagur, 10. apríl 2012
Fimmtudaginn 12 apríl hefst þriggja kvölda tvímenningur hjá Bridgefélagi Kópavogs. Spilaður verður Monrad-barómeter þar sem prósentuskor paranna hvert kvöld er lagt saman til að fá sigurvegara samanlagt.
Spilað er í Gjábakka, félagsheimili aldraðra, Fannborg 8, kl. 19:00 stundvíslega.