Þórður og Jörundur unnu 3ja kvölda Monrad-tvímenning

föstudagur, 27. apríl 2012

Í gærkvöldi lauk þriggja kvölda tvímenningi hjá Bridgefélagi Kópavogs og náðu Ragnar Björnsson og Sigurður Sigurjónsson besta skori kvöldsins með 57,1% en feðgarnir Þórður Jörundsson og Jörundur Þórðarson sigruðu hinsvergar heildarkeppnina með 55,4% meðalskor út úr kvöldunum þremur. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar