Bridgefélag Selfoss: Staðan í Lokatvímenningnum

föstudagur, 13. apríl 2012

Síðasta mót vetrarins hjá Bridgefélagi Selfoss hófst fimmtudaginn 12. apríl sl. Mótið er 2 kvölda tvímenningur sem er einfaldlega nefndur Lokatvímenningurinn. Í mótið mættu 13 pör til leiks og er spiluð einföld umferð allir við alla með 4 spilum á milli para. Efstir að loknu fyrra kvöldinu eru Brynjólfur og Helgi með 31,5 stig í plús. Í öðru sæti eru Össur og Yngvi Karl með 25 í plús og í þriðja sæti eru Magnús og Gísli með 21 í plús. Staðan, spilagjöf og öll úrslit eru á þessari síðu hér. Seinna kvöldið verður spilað fimmtudaginn 26. apríl, en ekkert er spilað hjá félaginu 19. apríl, Sumardaginn fyrsta.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar