Ólafur og Gunnar Björn Suðurlandsmeistarar í tvímenning

laugardagur, 24. mars 2012

Laugardaginn 24. mars var Suðurlandsmótið í tvímenning fyrir árið 2012 haldið að Heimalandi undir Eyjafjöllum. Til leiks í mótið mættu 20 pör, og spiluðu 3 spil á milli para, alls 57 spil. Lokaniðurstaðan varð sú að Ólafur Steinason og Gunnar Björn Helgason urðu Suðurlandsmeistarar með 59,3% skor, í öðru sæti urðu Gísli Þórarinsson og Þórður Sigurðsson með 58,2% og jafnir í 3. - 4. sæti urðu Guðlaugur Sveinsson og Sveinn Rúnar Eiríksson og þeir Halldór Gunnarsson og Kristján Mikkelsen með 54,9% skor. Þeir Guðlaugur og Sveinn unnu innbyrðis viðureignina við Halldór og Kristján og hlutu því 3. verðlaunin. Öll úrslit og spilin má finna á þessari síðu.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar