Tryggingamiðstöðin Suðurlandsmeistarar í sveitakeppni
sunnudagur, 15. janúar 2012
Tryggingarmiðstöðin varð Suðurlandsmeistari 2012 með 115 stig 23 stig að meðaltali í leik. Í öðru sæti varð sveitin Keppnisstjórasveitin og í þriðja sæti sveit MS. Í sigursveitinni spiluðu þeir Kristján Már Gunnarsson, Helgi Grétar Helgason, Björn Snorrason, Guðmundur Þór Gunnarsson, Þröstur Árnason og Sigurður Vilhjálmsson. Keppnisstjórasveitin keppti ekki um réttinn til að spila á Íslandsmótinu í Sveitakeppni, en auk Tryggingamiðstöðvarinnar og MS þá unnu sér rétt til að spila þar: Skýjaborgin, Tölvustoð og Súperlagnir. Finna má allt um mótið á þessari síðu.