Siggi og Raggi Janúarmeistarar hjá Bridgefélagi Kópavogs

fimmtudagur, 19. janúar 2012

Fyrstu keppni ársins hjá Bridgefélagi Kóopavogs lauk í kvöld en það var þriggja kvölda Janúar-monrad tvímenningur. Hörð keppni var um efstu sæti eins og alltaf í Kóopavogi. Heimir Þór Tryggvason og Árni Már Björnsson náðu besta skori kvöldsins með 59,4% skor en Sigurður Sigurjónsson og Ragnar Björnsson höfðu þó sigur að lokum í heildarkeppninni með 174,8 stig sem er samanlögð prósenta úr kvöldunum þremur. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kóopavogs.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar