N-vestra svæðamót í sveitakeppni
Um helgina var háð svæðamót Norðurlands vestra í sveitakeppni.
Keppt var um rétt til að spila í undanúrslitum Íslandsmóts í
sveitakeppni en Norðurland vestra á rétt til að senda þrjár sveitir
til þátttöku.
Alls voru spilaðir sex tuttugu spila leikir.
Sveit Sparisjós Siglufjarðar sigraði með yfirburðum en þeir sigruðu
alla andstæðinga sína með miklum mun og fengu 146 stig af 150
mögulegum. Sveit Sparisjóðsins skipuðu: Ólafur Jónsson, Birkir
Jónsson, Jón Sigurbjörnsson og Friðjón Þórhallsson
Annað sætið hreppti sveit Fisk-Seafood með 89 stig en með henni
spiluðu: Ásgrímur Sigurbjörnsson, Jón Örn Berndsen, Eyjólfur
Sigurðsson, Ólafur Sigmarsson, Bjarki Tryggvason og Skúli V
Jónsson.
Þriðja sætið kom í hlut Sveitar Guðna Kristjánssona með 62 stig, en
auk hans spiluðu Ólafur Stefánsson, Einar Svavarsson, Kristján
Birgisson, Stefán Berndsen og Sólveig Róarsdóttir.
Meðfylgjandi er mynd af Sveit Sparisjóðsins. Frá vinstri: Friðjón,
Birkir, Jón og Ólafur.