Reykjanesmót í tvímenningi 2011
sunnudagur, 11. desember 2011
Rétt í þessu lauk Reykjanesmótinu í Tvímenning sem haldið var á Suðurnesjum.
20 pör skráðu sig til leiks og leiknar voru 9 umferðir með 5 spilum á milli para. Suðurnesjalognið lék við keppendur og voru allir sammála um að við svona aðstæður væri best að spila bridge.