Ingvaldur og Úlfar unnu Jólatvímenninginn
föstudagur, 16. desember 2011
Í gærkvöld var Jólatvímenningur "hinn síðari" spilaður hjá Bridgefélagi Kóopavogs. Mikil og góð jólastemming sveif þá yfir spilaborðum enda léttar jólaveitingar í boði "hússins" og jólaleg spil í bökkunum.
Úlfar Örn Friðriksson og Ingvaldur Gústafsson náðu þá besta skori kvöldsins með 299,4 stig eða 59,4% sem dugði þeim til sigurs samanlagt. Öll úrslit og spilin má sjá hérna.