Fyrirlestur í BR 13. desember - Sagngreining GPA

föstudagur, 9. desember 2011

Þá er komið að síðasta fyrirlestrinum í BR fyrir jól.  Guðmundur Páll Arnarson ætlar að flytja fyrirlestur sem hefst kl. 18:00 n.k. þriðudag.  Umræðuefnið er sagngreining, ekki sálgreining eins og hann komst svo skemmtilega að orði sjálfur.  Sagngreining hefur aldrei áður verið kennd í Bridge þannig að hér er einstakt tækifæri fyrir fróðleiksfúsa að ná samkeppnisforskoti á aðra spilara.  Fyrirlestur er öllum opinn og stjórn BR býður fróðleiksfúsum uppá kaffi meðan á fyrirlestri stendur.

Hvetjum alla til að mæta, stjórnin

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar