Úrslit úr heimsókn Selfyssinga til Rangæinga

miðvikudagur, 9. nóvember 2011

Föstudaginn 4. nóvember sl. lögðu 11 pör frá Selfossi land undir fót og mættu í Golfskálann á Strönd og mættu 7 pörum frá Bridgefélagi Rangæinga í árlegri heimsókn. Skipst er á að spila á Selfossi og í Rangárvallasýslu. Spilaður var barómeter, allir við alla, 2 spil á milli para.

Þetta árið unnu þeir Þröstur Árnason og Sigurður Vilhjálmsson frá Selfossi með 66,5% skor. Í öðru sæti urðu Kristján Már Gunnarsson og Helgi Grétar Helgason með 60,7% skor og jafnir í 3. - 4. sæti urðu Sigfinnur Snorrason og Símon Sveinsson og Björn Snorrason og Guðmundur Þór Gunnarsson með 57,0% skor. Sigfinnur og Símon hlutu bronsverðlauninn þar sem þeir unnu innbyrðisviðureignina.

Öll úrslitin má finna á þessari síðu.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar