Frettir að norðan
Vetrarstarf Bridgefélags Akureyrar hefur farið ágætlega í
gang en nú er lokið þremur mótum.
Fyrsta mótið var Startmót Sjóvá sem var tveggja kvölda tvímenningur
með 15 pörum en efst urðu:
1. Stefán Ragnarsson - Pétur Guðjónsson 59,0%
2. Frímann Stefánsson - Reynir Helgason 55,8%
3. Valmar Valjaots - Víðir Jónsson 55,4%
Næst var Greifamótið, þriggja kvölda impa tvímenningur, en alltaf
er Greifamaturinn góður hvati til árangurs. 14 pör tóku þátt og
efstir urðu:
1. Frímann Stefánsson - Reynir Helgason +86,3 impar
2. Haukur Harðarson - Grétar Örlygsson +35 impar
3. Óttar I. Oddsson - Kristján Þorsteinsson +28,5 impar
Nýlokið er svo þriggja kvölda Hraðsveitakeppni Byrs með 8
sveitum:
1. Sveit Old Boys 1705stig : Pétur Guðjónsson, Stefán Ragnarsson,
Hörður Blöndal og Grettir Frímannsson
2. Sveit Gylfa Pálssonar 1574stig : Helgi Steinsson, Ævar
Ármannsson og Árni Bjarnason
3. Sveit Ragnheiðar Haraldsdóttur 1513stig : Una Sveinsdóttir,
Valmar Valjaots og Víðir Jónsson
Næsta mót er aðaltvímenningur félagsins þar sem Akureyrarmeistarar verða fundnir og baráttan verður án efa hörð.
Að lokum má rifja upp frumlögmálið í bridge sem fram kemur í þessari sígildu limru eftir formann B.A. Stefán Vilhjálmsson:
Í briddsinu byrjar oft senna
ef í blindni í sjóinn menn renna.
Við lýsum því öllu
með lögmáli snjöllu:
Það sem mistekst er makker að kenna!
Kveðja að norðan, Frímann Stefánsson