Briddsfélag Selfoss
föstudagur, 18. nóvember 2011
Síðast liðið fimmtudagskvöld hófst Sigfúsrmótið (aðaltvímenningur) Briddsfélags Selfoss með þátttöku 12 para. Um er að ræða fjögura kvölda barómeter. Þegar einu kvöldi af fjórum er lokið eru þeir Brynjólfur Gestsson og Helgi Hermansson efstir, á eftir þeim koma svo stórbændurnir Gísli Hauksson og Magnús Guðmundsson. Mótinu verður framhaldið næstkomandi fimmtudagskvöld.