Aðaltvímenningur BB
þriðjudagur, 8. nóvember 2011
Aðaltvímenningur Bridgefélags Borgarfjarðar hófst mánudaginn 7. nóvember. Spilaður er Barometer 7 spil á milli para en pörin eru 19, fjölgar vonandi í 20. Efstir eftir fyrsta kvöld eru bræðurnir Guðmundur og Unnsteinn Arasynir úr Borgarnesi, þeir náðu skori upp á 72,1%! Í öðru sæti eru Sveinbjörn Eyjólfsson og Lárus Pétursson, Hvanneyringar, með 61,2 %. Þriðja sætið verma svo ungstirnin Davíð Sigurðsson og Sigríður Arnardóttir, oftast kennd við Miðgarð, með 60,9%.