BR - Aron með fyrirlestur kl. 18 í dag um sagnvenjur
þriðjudagur, 27. september 2011
Aron Þorfinnsson mun í dag kl. 18 vera með fyrirlestur og
umræður um sagnvenjur.
Til dæmis ýmsar lebensohl-stöður og algengar sagnvenjur. Meðal
annars út frá því sjónarmiði að pör eru oft að nota sagnvenjur sem
koma mjög sjaldan upp og eru þar af leiðandi að missa af ýmsum
tækifærum fyrir algengari stöður. Auk þess sem hætta er á að gleyma
hlutum sem koma upp bara einu sinni á ári!
Kíkið á þetta í Síðumúla 37 kl. 18, fyrir lokakvöldið í
Cavendish-tvímenningnum!