BH: Svala og Garðar byrja með 66,1% í Gamla vínhús mótinu!

þriðjudagur, 27. september 2011

Svala Pálsdóttir og Garðar Garðarsson eru efst með 66,1% eftir 1. kvöldið af 3 í Gamla vínhús móti Bridgefélags Hafnarfjarðar. Næst eru María Haraldsdóttir og Sverrir Þórisson með 56,5% og í 3ja sæti eru Sigurjón Harðarson og Haukur Árnason með 55,6%.

Öll spil og úrslit er að finna á heimasíðu BH

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar