Sumarbridge og Alheimstvímenningur hjá B.A.

laugardagur, 28. maí 2011

Bridgefélag Akureyrar mun taka þátt í Alheimstvímenning þar sem sömu spil verða spiluð víða um heim á sama tíma. Á Akureyri verður hann spilaður föstudaginn 3.júní kl 19:00 í Skipagötu 14. Keppnisgjald verður 1000kr á mann og með fylgir bæklingur um spilin.

Einnig er spilað Sumarbridge alltaf á þriðjudögum á sama stað kl 19:30 en þá eru eins kvölds tvímenningar og impatvímenningar.

Fyrsta sumarbridge var 24.maí en þá unnu Reynir og Frímann eftir harað baráttu við Jón og Gissur.

Öl úrslit má sjá hér á heimasíðu Sumarbridge

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar