Norðurlandamótið 2025 á Íslandi
Norðurlandamótið 2025 verður haldið á Laugarvatni 5. - 8. júní 2025.
Síðasta keppni vetrarins hjá Bridgefélagi Kópavogs var tveggja kvölda Monrad-tvímenningur sem lauk í gærkvöldi. Þórður Jörundsson og Jörundur Þórðarson náðu besta skori kvöldsins, 59,4% en sigurvegarar samanlagt urðu Jón Steinar Ingólfsson og Jens Jensson með 117,2 stig sem er samanlögð prósentuskor kvöldanna tveggja. Öll úrslit á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.
Þetta var síðasta spilakvöld vetrarins en aðalfundur+létt spilamennska verður auglýst fljótlega.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar