Sveinn og Hjálmar sigruðu 3ja kv. Vor-monrad hjá BK

fimmtudagur, 14. apríl 2011

Þriggja kvölda Monradbarómeter lauk hjá Bridgefélagi Kópavogs í gærkvöldi. Sveinn R Þorvaldsson og Hjálmar S Pálsson héldu sýnu striki og sigruðu nokkuð örugglega með 172,8 stig sem er samanlögð prósentuskor úr kvöldunum þremur. Efstir síðasta kvöldið urðu Júlíus Snorrason og Eiður Mar Júlíusson með 56,9%. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.

Breyting verður á auglýstri dagskrá félagsins eftir páska. Einmenningurinn fellur niður en þess í stað verður tveggja kvölda tvímenningur með monrad-sniði, 28 apríl og 05 maí. Allir Velkomnir.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar