Júlíus Snorrason og Eiður Mar Júlíusson sigruðu Barómeterinn í Kópavogi

fimmtudagur, 24. febrúar 2011

Feðgarnir Eiður Mar Júlíusson og Júlíus Snorrason eru sigurvegarar í Barómeter Bridgefélags Kópavogs. Þeir náðu enn og aftur besta skori kvöldsins, 61%, þegar fjórða og síðasta lota var spiluð í kvöld. Þeir fengu 68% út úr síðustu umferðinni á meðan Birgir Örn og Ingvaldur fengu aðeins 33%  og tryggðu sér þannig efsta sætið í heildarkeppninni. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.

Þar sést heildarstaðan fyrir framan nöfn spilaranna en fyrir aftan má sjá skor og stöðu kvöldsins undir liðnum "session" 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar