Júlíus Snorrason og Eiður Mar Júlíusson sigruðu Barómeterinn í Kópavogi
fimmtudagur, 24. febrúar 2011
Feðgarnir Eiður Mar Júlíusson og Júlíus Snorrason eru sigurvegarar í Barómeter Bridgefélags Kópavogs. Þeir náðu enn og aftur besta skori kvöldsins, 61%, þegar fjórða og síðasta lota var spiluð í kvöld. Þeir fengu 68% út úr síðustu umferðinni á meðan Birgir Örn og Ingvaldur fengu aðeins 33% og tryggðu sér þannig efsta sætið í heildarkeppninni. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.
Þar sést heildarstaðan fyrir framan nöfn spilaranna en fyrir aftan má sjá skor og stöðu kvöldsins undir liðnum "session"