Júlíus og Eiður Mar enn í banastuði í Kópavogi

fimmtudagur, 3. febrúar 2011

Þann þriðja febrúar hófst fjögurra kvölda Barómeter hjá Bridgefélagi Kópavogs og er spilað á 11 borðum. Júlíus Snorrason og Eiður Mar Júlíusson kunna greinilega vel við sig í Kópavogium því þeir voru enn og aftur með geysigott skor,eða 65,3%. Næstur þrjú pör eru með rúm 60% en aðeins eru búnar 5 umferðir af 21. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar