Bridgefélag Rangæinga (32)
Undirritaður hefur fengið töluvert af athugasemdum bæði með tölvupóstsendingum sem og símtölum. Þar sem beðið er um frekari skýringar á fyrirbærinu "Selfoss-herbergi". Ekki þótti ástæða til þess að skýra þetta betur út í síðustu skrifum þar sem þetta átti ekki að verða aðalatriði fréttarinnar. En hlýða verður þörfum lesenda! Í umtöluðu herbergi voru þær sveitir sem misjafnasta gengin höfðu á hátíðinni og voru í raun stutt frá því að næla sér í yfirsetu með spilamennsku sinni, sumar jafnvel náðu í hana og fengu þ.a.l. gefins eitt gullstig! Í þessu herbergi söfnuðust saman þær sveitir sem komu yfir fjallið frá Selfossi. Því var það einhver ónefndur aðili, þó ekki undirritaður, sem gaf herberginu nafnið Selfoss-herbergi. Ég vona að þetta skýri orðið og hægt verði að skrifa frekar um fréttir frá Bridgefélagi Rangæinga í næstu greinum.
.
En frá Bridgefélagi Rangæinga er það helst að segja að Halldór vann nokkuð örugglega Magnúsana. Siggi rétt marði að halda jöfnu við Ævar eftir að hafa náð 44-7 forystu en hægt er að sjá nánari úrslit hér.